
Við tilheyrum fámennu þjóðfélagi ólíkra einstaklinga, en öll eigum við sameiginlegra hagsmuna að gæta í íslenskum landbúnaði.
Hvort sem fólk býr í Vesturbænum eða vestur á fjörðum, úthverfum eða milli heiða, hvort sem þau geta rakið ættliði sína langt aftur í sveitirnar á Íslandi eða er fyrsta kynslóðar innflytjandi, þá er okkur öllum mikilvægt að íslenskur landbúnaður sé öflugur og blómlegur. Það skiptir eyju í Atlantshafi máli að hér á landi sé traustur grunnur fyrir sjálfbæra matvælaframleiðslu og að sá grunnur eflist enn frekar til frambúðar. Innlend matvælaframleiðsla er ekki eingöngu munaður heldur nauðsyn fyrir okkur sem hér búum, og því mikilvægt að sterkt og gagnkvæmt samband eigi sér stað á milli bænda og annara sem búa á Íslandi.
Þess vegna er Bændasamtökunum mikilvægt að eiga í opnu samtali við þjóðina alla. Við erum nefnilega öll úr sömu sveit.